Endurbætur í skilakerfinu sem settar voru inn eru:
- Við innskráningu í kerfið er beðið um að skrá netfang, sem notað verður til að senda út tilkynningar úr kerfinu.
- Hægt er að skrá hlutfall af stöðugildi, til dæmis 0,5 fyrir hálft stöðugildi.
- Hægt að sækja ársreikning sem PDF-skjal.
- Hægt að sækja lista yfir iðkendur og félagsmenn sem Excel-skrá, með því að nota Hlaða niður.
- Samantektarskjal (pdf) hefur verið uppfært. Þetta er skjal sem verður til þegar búið er að skila inn gögnum og sýnir heildaryfirlit yfir skil.
- Íþróttahéruð geta sótt yfirlit yfir iðkendur og félagsmenn, fyrir öll aðildarfélög innan sinna vébanda, sem Excel-skrá beint úr kerfinu (Sjá undir: Staða félags).
- Sérsambönd geta sótt yfirlit yfir iðkendur sinnar íþróttar og skoðað sem Excel-skrá beint úr kerfinu niður á íþróttafélag (Sjá undir: Staða félags).
- Búið er að bæta við röðun á dálka undir liðnum Staða félaga.
Skráningar iðkenda og félagsmanna
Meistaraflokkar
- Athuga þarf sérstaklega hvort meistaraflokkar í öllum deildum eru skráðir í skilakerfið. Oft eru meistaraflokkar ekki tengdir í Abler-skráningarkerfið og flytjast því ekki yfir í skilakerfið.
Íþróttafólk með fötlun
- Sé félag með skipulagt starf fyrir iðkendur með fötlun þarf að skrá slíkt í möppuna Fatlaðir. Sé hún ekki til staðar skal óska eftir að stofna hana með því að senda tölvupóst á skila@isi.is.
Skipulagt félagsstarf
Sé félag með skipulagt félagsstarf sem fellur utan ÍSÍ en tilheyrir UMFÍ skal skrá þá iðkendur í flokkinn Skipulagt félagsstarf. Dæmi um slíkt eru skák, rafíþróttir, bridds, leiklist o.s.frv. Sé sú mappa ekki til staðar skal óska eftir stofna hana og senda tölvupóst á skila@isi.is.