ATHUGIÐ: Greiðsluseðill stofnast ekki sjálfkrafa ef aðili greiðir ekki útgefinn reikning eða áskrift í Abler. Það þarf að stofna hann handvirkt.


Greiðsluseðill í heimabanka stofnast þó sjálfkrafa ef viðkomandi er í greiðsludreifingu og skuldfærsla af korti tekst ekki.
(Sjá nánar hér)


Neðst í þessari grein finnur þú leiðbeiningar um hvernig á að stofna greiðsluseðil á fyrirtæki ásamt því að sjá hvernig innheimtureglur Motus eru. 


Skref-fyrir-skref leiðbeiningar 

Ef viðkomandi er ekki skráður með ógreiddan reikning í þjónustu þá þarf að gera það áður en greiðsluseðill er stofnaður. Sjá: Skrá iðkanda í þjónustu


Stofna greiðsluseðil

Ef þú vilt búa til greiðsluseðil sem birtist í heimabanka greiðanda:


  1.  Farðu í þjónustuna sem á við, smelltu á þrjá punktana við hliðina á nafni iðkandans og veldu Stofna greiðslu.

  2. Veldu Greiðsluseðill sem greiðslumáta.

Möguleikar í stofnun greiðsluseðils:

  • Gjalddagi/ Eindagi: Veldu eindaga og gjalddaga greiðsluseðils.

  • Custom: Ef þú vilt stilla gjalddaga og eindaga með öðrum dagsetningum en er boðið upp á.

  • Aðstandandi sem greiðandi: Hægt er að velja eða slá inn kennitölu aðstandanda sem á að fá seðilinn í heimabanka.

  • Önnur tengd aðili (t.d. amma): Þú getur slegið inn kennitölu annarra sem eiga að fá seðilinn.

  • Upplýsingar: Hægt að bæta við texta sem birtist á kvittun greiðanda.

  • Number of payments: Veldu í hversu mörgum greiðsluseðlum greiðslan skiptist.

Ef greiðsluseðill er ekki greiddur fer hann í innheimtuferli nema þið séuð ekki með slíkan samning við Mótus. Sjá neðst á þessari blaðsíðu. 


Dæmi: Skipt í þrjár greiðsluseðla



Greiðsluseðill á fyrirtæki

Ef greiðandi er fyrirtæki:

  1. Fylgdu sama ferli og lýst er að ofan.

  2. Í stað þess að setja kennitölu aðstandanda eða iðkanda, slærðu inn kennitölu fyrirtækisins.


    Yfirlit yfir innheimtuferlið hjá Motus


    Ef ekkert annað er valið (þið getið ráðið gjalddögum og eindögum þegar þið stofnið greiðsluseðil) þá er þetta almennt þannig að eindagi er 10 dögum eftir gjalddaga, innheimtuviðvörun er send út af greiðslumiðlun í nafni félagsins 10 dögum eftir eindaga (20 dögum eftir gjalddaga). 10 dögum eftir að innheimtuviðvörunin er send út (30 dögum eftir gjalddaga) er málið sent til Motus. Þá fær félagið tilkynningu um að málið sé að fara í Motus og hefur sólarhring til að bregðast við ef krafan á að fá einhverja sérmeðferð, annars rúllar hún af stað í Motus sem sendir bréf daginn eftir, aftur 10 dögum seinna, svo er hringt og síðasta bréfið er svo sent í framhaldinu en þá eru liðnir 70 dagar frá gjalddaga. Nánari útskýring er á meðfylgjandi mynd.


  • Það er hægt að stilla hverja deild í upphafi með mismunandi reglur á gjalddaga og eindaga, en almennt stofnast krafan í heimabanka viðkomandi nokkrum mínútum eftir skráningu með gjalddaga nánast strax og svo eindaga 10 dögum síðar.


  • Seðilgjald er almennt 390 kr. og er greitt af greiðanda. Dæmi: ef æfingagjöld eru 10.000kr og valið er að greiða með greiðsluseðli þá er krafan sem greiðist í heimabanka viðkomandi 10.390kr. Félagið fær 10.000kr. og 390kr. fara í kostnað við stofnun greiðslukröfu í banka, til RB o.fl.


  • Ef krafa er búin að fara í gegnum allt ferlið og er ennþá ógreidd, þá er oftast mælt með kröfuvakt en ekki fjárnám. Flest félög eru með einhverjar kröfur í þessum fasa. Kröfuvakt virkar þannig að krafan er eiginlega bara sett í „geymslu“ hjá Motus, þau senda bréf og hringja og minna á hana reglulega. Ef hún svo greiðist að lokum í kröfuvakt þá fær félagið 50% og Motus 50%. En ef hún greiðist aldrei þá kostar það félagið ekkert, Motus situr uppi með kostnaðinn við að senda bréfin og hringja.


  • Ef greiðsludreifing er í gangi á greiðslukort og greiðsla 3 af 5 fær ekki heimild þá er stofnaður greiðsluseðill fyrir þeirri skuldfærslu með gjalddaga og eindaga strax, en svo við skuldfærslu 4 af 5 er reynt aftur að skuldfæra kortið (sjá nánar leiðbeiningar um skuldfærsla mistókst hér). 


Frekari upplýsingar um stöðu greiðsluseðla, kröfur  og aðgangur að viðskiptavef Mótusar


Greiðslumiðlun Þjónustuver í síma 527-4400: Til að fá upplýsingar um greiðsluseðil, stöðu hans osfrv. áður en 10 dagar eru liðnir frá útgáfu innheimtuviðvörunnar  


Þjónustver Mótusar í síma 440-7000: Eftir að 10 dagar eru liðnir frá útsendingu innheimtuviðvörunnar. Til að fá upplýsingar um stöðu krafna og fá aðgang að viðskiptavef Mótusar. Við hvetjum alla til að fá aðgang að þjónustuvef Mótus, þar sem hægt er að fylgjast með stöðu krafna og framkvæma helstu aðgerðir (t.d. fella niður kröfur).