Viltu að viðskiptavinir þínir fái sérsniðinn tölvupóst frá félaginu þínu við kaup á áskrift? Þá er þetta lausnin fyrir þig!


Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar hvernig þú getur búið til sérsniðinn tölvupóst og tengt hann við þjónustur, þannig að viðskiptavinir fái sjálfkrafa tölvupóst frá ykkur þegar þeir kaupa þjónustuna.


1. Hægt er að virkja tölvupóstinn þegar verið er að stofna eða breyta þjónustu.


Smellt er á Tilkynning með tölvupóst og svo er rétti tölvupósturinn valinn, ef ekki er búið að búa til tölvupóst þá er smellt á Sýsla með tölvupósta



2. Eins og sést á myndinni hér fyrir neðan þá er ekki til neinn tölvupóstur og þá er stofnaður nýr póstur. Til þess að gera það þá er smellt á Búa til nýtt +.



3. Þá birtist þetta form sem þið fyllið út. Þar er skrifað nafnið á tölvupóstinum, titil og svo innihaldið.


Hér fyrir neðan er dæmi af tölvupóst. Valdnar voru nokkar breytur eins og t.d. recipientName sem er nafnið á kaupandanum og svo var einnig valið playerName sem er nafnið á iðkandanum/nemendanum.


Þegar búið er að fylla formið út þá er smellt á Save.


Ath. ekki er hægt að breyta Viðburður, Frá og Svar frá dálkunum

4. Nú er búið að búa til tölvupóstinn og þá er hægt að hengja hann við þjónustuna. Það er hægt með því að velja tölvupóstinn þegar verið er að stofna eða breyta þjónustunni.