Shop - Club

 

Það gleður okkur að tilkynna að vefverslun Abler mun fá yfirhalningu á næstu dögum. Um er að ræða útlitsbreytingar sem auka möguleika á að sérsníða bókunarsíður og auðvelda þátttakendum að finna og bóka námskeið.

 

Hvað er að breytast

Aukin sérsníðing Nú getur þú notað liti þíns félags með áhrifaríkari hætti og hlaðið inn myndum til að glæða vefsvæði þitt enn meira lífi. 

Upplýsingar um félag Tölvupóstur og helstu upplýsingar um félagið verða sýnilegar og hægt verður að nálgast þær án þess að yfirgefa vefsverslunarsvæðið.

 

Hvað helst óbreytt

Öll núverandi námskeið, verðskrár og gögn haldast óbreytt. Allar uppsetningar innan kerfisins, bókunarferlar og greiðsluskerfi sem nú þegar eru til staðar haldast áfram óbreytt.

 

Hvað gerist næst

Vefverslunin mun uppfærast sjálfkrafa á næstu dögum og þú getur byrjað að undirbúa breytingarnar.

 

Settu inn liti félagsins

 

Screenshot 2025-08-26 at 16.50.07

Veldu þitt félag -> Breyta -> Breyta félagi -> Appearance -> Vefverslun

Bæta við myndum fyrir hverja þjónustu

Screenshot 2025-08-27 at 11.34.21

Veldu deild -> Þjónustuyfirlit -> Velja þjónustu -> Breyta -> Breyta þjónustu -> Myndir

Uppfæra upplýsingar um þitt félag

Screenshot 2025-08-27 at 11.36.33

Veldu þitt félag -> Breyta -> Breyta félagi -> Upplýsingar

Þjónustufulltrúar okkar er á tánum þessa dagana og svara öllum fyrirspurnum í tengslum við þessar breytingar hratt og vel. Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband. 

 

Við hlökkum til að sjá hvernig hinn fjölbreytti og öflugi notendahópur Abler mun notfæra sér þessa nýju notendamöguleika til að efla enn frekar sitt góða starf!