Í Abler geturðu auðveldlega bætt við notendum og úthlutað þeim hlutverkum eins og stjórnanda eða þjálfara. Hvert hlutverk felur í sér ákveðin réttindi sem ákvarða hvaða aðgang og heimildir notandinn hefur innan félagsins. Hér að neðan finnur þú yfirlit yfir helstu hlutverk og leiðbeiningar um hvernig á að úthluta þeim



EFNISYFIRLIT

  • Hlutverk stjórnanda
  • Hlutverk þjálfara
  • Bæta við stjórnanda (á félag)
  • Bæta við stjórnanda (á deild)

Hlutverk stjórnanda


Þú getur sett stjórnanda annaðhvort á allt félagið eða aðeins á ákveðna deild/ir. Stjórnandi með aðgang að öllu félaginu hefur full réttindi, á meðan deildarstjórnandi hefur eingöngu aðgang að viðkomandi deild.


Það eru fjögur aðskilin stjórnendahlutverk í Abler:


Stjórnandi félags

Hefur aðgang að flestum stjórntækjum félagsins, en án greiðsluréttinda. Þetta hlutverk veitir aðgang að skipulagi, viðburðum, meðlimum o.fl., en ekki að fjármálum, greiðslum eða reikningum. Hentar vel fyrir yfirþjálfara eða annað starfsfólk sem þarf að stýra starfsemi félagsins án þess að sjá um greiðslur.


Greiðsluréttindi

Hlutverk sem veitir notanda heimild til að innheimta gjöld, t.d. fyrir ákveðin mót eða æfingar í gegnum Abler Pay. Oft notað fyrir þjálfara sem sjá um sérstaka viðburði með greiðslu. Ef það á að stofna þjálfara með greiðsluréttindi þarf að gera það undir viðeigandi deild en ekki á félaginu sjálfu.


Stjórnandi félags + Greiðsluréttindi

Veitir notanda full réttindi innan félagsins, bæði að því sem snýr að skipulagi og fjármálum. Getur innheimt gjöld, sinnt reikningagerð og bætt við öðru starfsfólki. Hentar þeim sem eru í yfirumsjón með félaginu. Einnig er hægt að hafa þessi réttindi á ákveðinni deild. 


Bókari

Aðeins í boði ef bókhald hefur verið virkjað. Bókari hefur aðgang að flipanum „Bókhald“ í fjármálakerfinu og getur sinnt færslum, bókhaldslyklum og útflutningi gagna.


Móttaka

Takmarkað hlutverk ætlað t.d. móttökustarfsmönnum í líkamsræktarstöðvum. Veitir aðgang til að stofna áskriftir og aðstoða viðskiptavini innan tiltekinnar deildar. 



Hlutverk þjálfara


Þjálfarar hafa aðgang að þeim hópum eða liðum sem þeir eru skráðir með, og geta m.a. stofnað æfingar og leiki, sent skilaboð og fylgst með mætingum. Smelltu hér til að sjá leiðbeiningar hvernig þú stofnar og sýslar með þjálfara


Þrjú þjálfararéttindi eru í boði:


Aðalþjálfari

Sést sem „Aðalþjálfari“ í appinu, sem hjálpar leikmönnum og forráðamönnum að vita hver ber ábyrgð á hópnum. Hefur heimild til að bæta við öðrum þjálfurum, skipuleggja æfingar og sjá um daglegt starf liðsins.


Þjálfari

Svipað og aðalþjálfari, en hefur ekki heimild til að bæta við öðrum þjálfurum. Sést sem „Þjálfari“ í appinu og er staðsettur fyrir neðan aðalþjálfara í liðsuppsetningu.


Aðstoðarmaður

Hlutverk fyrir foreldra eða aðra aðstoðarmenn sem þurfa að geta stofnað viðburði en hafa ekki full réttindi þjálfara.



Bæta við stjórnenda á félag, deild og greiðsluréttindi á þjálfara.

1. Hvernig á að bæta stjórnanda við félag

  1. Ýttu á félagið í vinstri stikunni og smelltu á Breyta félagi.

  2. Í glugganum sem opnast, veldu Stjórnendur.

  3. Skrifaðu inn netfang starfsmannsins.

  4. Veldu viðeigandi réttindi eins og lýst er hér að ofan.

  5. Smelltu á Stofna admin til að staðfesta.

  6. Starfsmaðurinn þarf að skrá sig út og aftur inn til að breytingin taki gildi. Ef starfsmaðurinn er ekki með Abler aðgang þá fær hann boð á netfangið sitt um að stofna aðgang.


2. Hvernig á að bæta stjórnanda við deild

  1. Farðu í viðkomandi deild, smelltu á þjónustuyfirlit og breyta svo Breyta deild.

  2. Í glugganum sem opnast, veldu Stjórnendur.

  3. Skrifaðu inn netfang starfsmannsins.

  4. Veldu viðeigandi réttindi.

  5. Smelltu á Stofna admin til að staðfesta.

  6. Starfsmaðurinn þarf að skrá sig út og aftur inn til að breytingin taki gildi. Ef starfsmaðurinn er ekki með Abler aðgang þá fær hann boð á netfangið sitt um að stofna aðgang. 


3. Hvernig á að bæta greiðsluréttindum við þjálfara

  1. Farðu í viðkomandi deild, smelltu á þjónustuyfirlit og breyta svo Breyta deild rétt eins og í dæminu hér að ofan.

  2. Í glugganum sem opnast, veldu Stjórnendur.

  3. Skrifaðu inn netfang þjálfarans

  4. Veldu "Greiðslur" sem réttindi.

  5. Smelltu á Stofna admin til að staðfesta.

  6. Þjálfarinn þarf að skrá sig út og aftur inn til að breytingin taki gildi.