Athugið:
* Til að stofna viðburð með greiðslu þarf þjálfari að hafa greiðsluréttindi. Stjórnendur félagsins ákveða hver fær þessi réttindi.
* Það tekur allt að tvo virka daga að fá greitt inn á viðtökureikning flokksins/félagsins frá færsluhirðinum
* Við mælum því með alltaf með að stofna greiðsluviðburð tímanlega
* Ekki nota ", $, % og samskonar tákn í nafni og lýsingu viðburðarins
Tilkynningar eru sendar aðeins til þeirra sem hafa ekki svarað viðburðinum.
Kerfið sendir sjálfkrafa áminningar:
- Viku fyrir gjalddaga
- Þremur dögum fyrir gjalddaga
- Degi fyrir gjalddaga
- Klukkustund fyrir gjalddaga
Ef meðlimur er búinn að merkja mæti eða mæti þá fær hann ekki áminningu heldur einungis þeir sem enga hafa svarað.
Í appi:
1. Valið er flokkinn þar sem viðburðurinn á að birtast.
2. Þar er farið í dagskrána og smellt á þrjá punktana uppi í hægra horni. Smellt er síðan á Stofna viðburð.
3. Fyllt er út skjalið sem opnast og neðst er hægt að haka við ef þetta á að vera greiðsluviðburður.
Í tölvu
Skref 1. Til að stofna greiðsluviðburð þarftu að hafa greiðsluréttindi. Félagið sér um að útdeila greiðsluréttindum. Ef þú ert með greiðsluréttindi samkvæmt félaginu og það virkar ekki að stofna greiðsluviðburð er gott að prufa að skrá sig út og aftur inn til að virkja réttindin.
Ef ekkert virkar þá biðjum við ykkur um að hafa samband í gylltu blöðruna lengst í hægra horninu niðri og við leysum málið með ykkur.
Skref 2. Til að stofna greiðsluviðburð er smellt á flokkinn sem um ræðir og því næst er smellt á örina við hjá viðburðir og þar er smellt á stofna viðburð.
Skref 3. Þegar smellt er á stofna viðburð opnast þetta form og í því formi hakið þið við "gjald fyrir viðburð"
Skref 4. Fylla út í formið
Skref 5. Þegar smellt er á stofna viðburð fer greiðsluviðburðinn efst í dagskrána hjá viðkomandi hóp vegna þess að hakað er í Pinna efst í dagskrá. Þegar foreldri er búinn að greiða þá dettur viðburðurinn á réttan stað í dagskránni. Ef foreldri velur mæti ekki þá hverfur viðburðurinn úr dagskránni.
Sjá meira um Abler pay
Setja inneign á einstaka aðila
Breyta upphæð/afslátt á einstaka aðila
Stofna undirhóp út frá greiðsluviðburði