Sem stendur er aðeins hægt að stofna æfingaáætlun í gegnum tölvu, en ekki í appinu.
Til að stofna æfingaáætlun þá er smellt á Viðburðir --> Stofna æfingaáætlun.
Sjá myndband neðst á síðunni.
Á myndinni fyrir neðan er dæmi um útfyllta æfingaáætlun sem rúllar frá 02/11/24 - 18/12/24.
Mikilvægt er að velja rétta hópa á æfingarnar til að iðkandinn/forráðamaður fái rétt æfingaplan.
Í þessu dæmi er gert ráð fyrir sjálfgefni mætingu sem þýðir að ég sem þjálfari geri ráð fyrir að allir mæti á æfinguna. Ef það er ekki hakað við "Sjálfgefin mæting" þarf iðkandi/foreldri að svara hvort hann mæti.
Á miðri æfingu eða eftir æfingu getur þjálfari svo farið í mætingakladdan og merkt við þá sem mættu ekki. Einnig getur iðkandinn/foreldrinn hakað við mæti ekki fyrir æfinguna og látið þjálfara vita.