Þessi grein veitir leiðbeiningar um hvernig á að bæta þjálfara við í Abler, velja réttan aldursflokk og úthluta viðeigandi þjálfarastöðu. Hún skýrir einnig mismunandi hlutverk þjálfara og hvernig á að stofna eða fjarlægja þjálfara í kerfinu.


Flipinn Þjálfarar sýnir alla þjálfara innan  félags, deildar eða flokks. Notaðu Bæta við þjálfara til að bæta þjálfurum við flokka innan félagsins.


Á flipanum Þjálfarar geturðu skoðað upplýsingar um þjálfara, úthlutuð hlutverk, samskiptaupplýsingar og hvaða flokkum þeir eru tengdir.


Hlutverk þjálfara


Í Abler getur þjálfari haft eitt af þremur hlutverkum sem veita mismiklar heimildir innan hvers flokks:


  • Yfirþjálfari – Hefur aðgang að öllum tengdu flokknum og er merktur yfirþjálfari flokksins í appinu.

  • Þjálfari – Hefur svipaðan aðgang og yfirþjálfari nema getur ekki bætt við eða sýslað með aðra þjálfara flokksins.

  • Aðstoðarmaður – Hefur takmarkaðan aðgang. Getur aðeins tekið niður mætingu og sent skilaboð til annarra þjálfara. "Ef aðstoðarmaður hafði áður greiðsluréttindi til að stofna greiðsluviðburði, þarf að uppfæra hlutverkið í þjálfara til að halda þeim réttindum"


Sía þjálfara


Notaðu síurnar efst á síðunni til að sía þjálfara eftir hlutverki, til dæmis:

  • Yfirþjálfari
  • Þjálfari
  • Aðstoðarþjálfari

Þetta auðveldar þér að finna tiltekna þjálfara innan félagsins.




Bæta við þjálfara:

  1. Smelltu á Bæta við starfsfólki efst í hægra horninu á félaga-, deildar- eða flokks stigi til að bæta við þjálfara.
  2. Ef notandinn er þegar meðlimur í félaginu geturðu leitað að honum með nafni. Ef hann hefur ekki enn skráð sig í Abler geturðu boðið honum með því að velja Nýr meðlimur. Fylltu út allar nauðsynlegar upplýsingar og smelltu á Stofna starfsmann. Notandinn fær þá boð um að stofna og staðfesta Abler-aðgang sinn.
  3. Eftir að þjálfara hefur verið bætt við getur hann séð allar upplýsingar um þann flokk sem honum hefur verið úthlutað í appinu. Þjálfurum er nú hægt að úthluta á æfingar og viðburði.


Ef þú þarft aðeins að bæta þjálfaranum við einn hóp skaltu velja flokkastig. Ef þú þarft að bæta þjálfaranum við marga hópa innan sömu deildar skaltu velja deildarstig. Ef þú þarft að bæta þjálfaranum við hópa í fleiri en einni deild skaltu velja félagsstig.



Fjarlægja þjálfara úr flokki

Til að fjarlægja þjálfara úr flokki:

  1. Smelltu a "þjálfarar" undir félaginu. 
  2. Veldu þjálfara sem þú vilt breyta
  3. Smelltu á þriggja punkta valmyndina við flokkinn sem þú villt fjarlægja hann úr. 
  4. Veldu Fjarlægja úr hópi.

Þegar starfsmaður er fjarlægður úr hópi missir hann það hlutverk og þann aðgang sem hann hafði innan þess tiltekna hóps, en breytingin hefur ekki áhrif á aðgang hans eða hlutverk í öðrum hópum.