Viðburðir í Abler eru athafnir sem stjórnendur félaga eða þjálfarar stofna til fyrir hópa, til dæmis æfingar, leiki, fundi, mót eða félagsviðburði.

Þegar viðburður er stofnaður birtist hann sjálfkrafa hjá iðkendum, forráðamönnum og þjálfurum í Abler-appinu. Notendur geta séð tíma, staðsetningu, lýsingu og aðrar mikilvægar upplýsingar beint í dagskrá sinni í Abler-appinu.
Iðkendur og forráðamenn geta einnig staðfest eða hafnað mætingu, séð uppfærslur og fengið tilkynningar ef breytingar eru gerðar á viðburðinum.
Alltaf er hægt að breyta viðburðum, uppfæra þá, fella þá niður eða eyða þeim eftir þörfum.



Viðburðaflipinn veitir yfirlit yfir alla skipulagða viðburði innan félagsins. Þar geta starfsmenn skoðað, stjórnað og stofnað æfingar og aðrar tegundir viðburða.

Viðburðahlutinn er aðgengilegur á þremur mismunandi stigum í kerfinu:

  • Félagsstig – sýnir alla viðburði innan félagsins.
  • Deildarstig – sýnir alla viðburði innan valinnar deildar.
  • Hópstig – sýnir viðburði fyrir tiltekinn hóp.


Úr þessu yfirliti geta starfsmenn:

  • Skoðað komandi og liðna viðburði.
  • Síað og leitað að viðburðum.
  • Skoðað upplýsingar um mætingu.
  • Séð úthlutaða undirhópa, þjálfara og staðsetningar.
  • Stofnað nýjar æfingar og aðra viðburði.



1. Til að stofna nýjan viðburð skaltu smella á "Búa til viðburð" efst í hægra horninu. Starfsfólk getur valið á milli mismunandi tegunda viðburða, svo sem:


2. Þegar æfing eða annar viðburður er stofnaður getur starfsfólk skilgreint eftirfarandi upplýsingar:

  • Hóp
  • Heiti viðburðar
  • Dagsetningu og tíma
  • Undirhópa
  • Starfsfólk/þjálfara
  • Svæði


Þessar upplýsingar verða sýnilegar iðkendum og forráðamönnum. Sá hópur sem valinn er fær aðgang að viðburðinum og getur séð hann í Abler-appinu.

Einnig er hægt að stofna undirhópa innan hóps ef þörf er á að skipta hópnum upp í smærri einingar.




Hver viðburður er einnig með aðgerðavalmynd (⋮) hægra megin í röð viðburðarins. Úr þessari valmynd getur starfsfólk:

  • Breytt viðburðinum.
  • Flutt út gögn sem Excel- , CSV- eða PDF skrá.
  • Sent skilaboð sem tengjast viðburðinum.
  • Afritað fyrirliggjandi viðburð.
  • Bætt við forsíðumynd.
  • Skoðað aðgerðaskrá.
  • Aflýsa eða eyða viðburði.



Þetta veitir heildaryfirlit yfir alla viðburði innan félagsins og gerir starfsfólki auðvelt að skipuleggja og halda utan um viðburði á öllum stigum skipulags félagsins.


Í appi:


1. Smelltu á flokkar og veldu flokkinn þar sem þú vilt stofna æfingu.

2. Því næst er smellt á dagskrá og svo " + "  hægra neðra horninu.

3. Smelltu á Æfing og í framhaldi eru fylltar út upplýsingar til þess að stofna æfingu.  



Mikilvægt að velja réttan hóp/hópa sem eiga að fá boð á æfinguna og velja svæði þar sem æfingin fer fram.


Ef hakað er í sjálfgefin mæting gerið þið ráð fyrir að allir mæti. Foreldrar/iðkendur geta þó breytt úr mæti í mæti ekki. Ef ekki er hakað í sjálfgefin mæting þá þurfa foreldrar/iðkendur að svara hvort þeir mæti á æfinguna. 


Senda tilkynningu: Þið getið valið um það hvort þið viljið senda tilkynningu á aðstandendur og/eða leikmenn um þessa tilteknu æfingu.