Í Abler geturðu auðveldlega bætt við notendum og úthlutað þeim hlutverkum eins og stjórnanda eða þjálfara. Hvert hlutverk felur í sér ákveðin réttindi sem ákvarða hvaða aðgang og heimildir notandinn hefur innan félagsins. Hér að neðan finnur þú yfirlit yfir helstu hlutverk og leiðbeiningar um hvernig á að úthluta þeim
Hlutverk stjórnanda
Þú getur sett stjórnanda annaðhvort á allt félagið eða aðeins á ákveðna deild/ir. Stjórnandi með aðgang að öllu félaginu hefur full réttindi, á meðan deildarstjórnandi hefur eingöngu aðgang að viðkomandi deild.
Athugið: Ef þú þarft að bæta við þjálfurum sem sjá um æfingar og stjórna flokkum skaltu fara eftir eftirfarandi leiðbeiningum: Bæta við þjálfurum.
Það eru fjögur aðskilin stjórnendahlutverk í Abler:
1. Stjórnandi félags
Hefur aðgang að flestum stjórntækjum félagsins, en án greiðsluréttinda. Þetta hlutverk veitir aðgang að skipulagi, viðburðum, meðlimum o.fl., en ekki að fjármálum, greiðslum eða reikningum. Hentar vel fyrir yfirþjálfara eða annað starfsfólk sem þarf að stýra starfsemi félagsins án þess að sjá um greiðslur.
2. Greiðsluréttindi
Hlutverk sem veitir notanda heimild til að innheimta gjöld, t.d. fyrir ákveðin mót eða æfingar í gegnum Abler Pay. Oft notað fyrir þjálfara sem sjá um sérstaka viðburði með greiðslu. Ef það á að stofna þjálfara með greiðsluréttindi þarf að gera það undir viðeigandi deild en ekki á félaginu sjálfu.
Stjórnandi félags + Greiðsluréttindi
Veitir notanda full réttindi innan félagsins, bæði að því sem snýr að skipulagi og fjármálum. Getur innheimt gjöld, sinnt reikningagerð og bætt við öðru starfsfólki. Hentar þeim sem eru í yfirumsjón með félaginu. Einnig er hægt að hafa þessi réttindi á ákveðinni deild.
3. Bókari
Aðeins í boði ef bókhald hefur verið virkjað. Bókari hefur aðgang að flipanum „Bókhald“ í fjármálakerfinu og getur sinnt færslum, bókhaldslyklum og útflutningi gagna. Aðeins nothæft fyrir félög sem nýta sér bókhald Abler.
4. Móttaka
Takmarkað hlutverk ætlað t.d. móttökustarfsmönnum í líkamsræktarstöðvum. Veitir aðgang til að stofna áskriftir og aðstoða viðskiptavini innan tiltekinnar deildar.

Bæta við stjórnendum félags
- Farðu í Stillingar og veldu Stjórnendur.
- Smelltu á Bæta við stjórnanda.

- Leitaðu að kennitölu, nafni eða netfangi til að finna núverandi Abler-notanda, eða sláðu inn kennitölu/netfang til að bjóða nýjum notanda að verða stjórnandi félagsins.
- Veldu Stjórnendahlutverk
- Smelltu á Staðfesta.
- Núverandi notendur fá strax aðgang að stjórnun félagsins og bætast við lista yfir stjórnendur.
- Nýir notendur fá boð um að stofna Abler-aðgang og bætast við lista yfir stjórnendur með stöðuna Í bið.
Einnig er hægt að fjarlægja stjórnendur úr félaginu ef þeir þurfa ekki lengur aðgang eða eru ekki lengur hluti af félaginu.


Bæta við deildarstjórnendum
Deildarstjórnendur geta skoðað og stjórnað öllum stillingum og gögnum fyrir tiltekna deild.
- Farðu í Stillingar félags og veldu viðkomandi Deild af deildalistanum.
- Smelltu á flipann Stjórnendur á stillingasíðu deildinar.
- Smelltu á Bæta við stjórnanda.
- Leitaðu að kennitölu, nafni eða netfangi til að finna núverandi Abler-notanda, eða sláðu inn kennitölu/netfang til að bjóða nýjum notanda að verða stjórnandi félagsins.
- Veldu Stjórnendahlutverk
- Smelltu á Staðfesta.
- Núverandi notendur fá strax aðgang að stjórnun félagsins og bætast við lista yfir stjórnendur.
- Nýir notendur fá boð um að stofna Abler-aðgang og bætast við lista yfir stjórnendur með stöðuna Í bið.
