Uppfærð beintenging Abler við nýtt mótakerfi KSÍ fór í loftið á dögunum og virkar enn betur en gamla tengingin.
Það er búið að tengja alla flokka við KSÍ sem gerir ykkur kleift að leita að öllum leikjum flokksins og hlaða þeim beint inn í Abler.

Við mælum með því að hlaða leikjadagskránni hjá ykkar flokk inn í kerfið langt fram í tímann til að spara vinnu þegar líður á tímabilið. Síðan þegar kemur að því að boða í leikina er raðað í liðin í undirhópunum og þeir svo settir á leikina.

Þegar þjálfari velur hóp á leik, t.d. “B-lið” þá kemur upp valmynd þar sem hægt er að senda öllum í þeim hóp tilkynningu um að þeir hafi verið settir á leik.
Það kemur tengill á keppnina inn í viðburðinn og úrslitin uppfærast þegar það er búið að skrá þau.
Kerfið okkar fylgist síðan með breytingum í leikjagrunninum og ef það breytist leikur í framtíðinni sem er búið að setja inn í Abler þá uppfærist hann sjálfkrafa í takt við KSÍ, t.d. leikstaður og leiktími. Þeir sem eru skráðir á leikinn fá þá tilkynningu í gegnum appið með nánari upplýsingum um breytinguna.

Við hvetjum þjálfara til að koma sér upp á lagið með gott flæði við boðun í leiki og minnum á það að við erum alltaf reiðubúin í þjónustuverinu (abler@abler.io) ef einhverjar spurningar vakna.