Þú getur horft á myndband neðst á síðunni sem sýnir hvernig á að skrá iðkanda í þjónustu.

Sem stjórnandi getur þá skráð iðkendur í þjónustu. Þú getur leitað að iðkendum í kerfinu eða stofnað nýja. Hægt er að velja hversu oft áskriftin á að endurnýjast og hvort veita eigi iðkanda afslátt. Þegar iðkandi hefur verið skráður í þjónustuna, stofnast sjálfkrafa reikningur í kerfinu. 

Til að skrá iðkanda í þjónustu


  1. Farðu í vinstri valmyndina í Stjórnenda HQ og veldu Þjónustuyfirlit.
  2. Veldu námskeiðið sem iðkandinn vill skrá sig í.
  3. Veldu flipann Áskriftir og finndu viðkomandi iðkanda í listanum. Ef um nýjan iðkandi er að ræða, smelltu á punktana þrjá efst í iðkendalistanum, veldu Bæta við meðlim og fylltu út nauðsynlegar upplýsingar. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig á að bæta við iðkendum, sjá Bæta við/fjarlægja iðkanda úr flokk.
    ATH. Vertu viss um að skrá iðkandann sjálfan en ekki forsjáraðila/greiðanda.
  4. Dragðu iðkandann yfir í viðeigandi þjónustuvalkost hægra megin á skjánum. 
  5. Gluggi opnast. Ef iðkandinn á rétt á afslætti getur þú tilgreint hann hér áður en þú heldur áfram. Þú verður að setja inn útskýringu á afslættinum í athugasemdarreitinn. Útskýringin verður vistuð með áskriftinni og er ekki sýnileg kaupanda. 
    ATH. Ef viðkomandi á ekki að greiða er best að setja inn 100% afslátt.
    
  6. Þegar skráningu er lokið verður ógreiddur reikningur búinn til á Abler aðgangi iðkandans tilbúinn til greiðslu af iðkanda eða forsjáraðila. Fyrir nánari upplýsingar um hvernig á að greiða fyrir skráðan iðkanda, sjá Forskráðir iðkendur (Greiða æfingagjöld)


Ef þú vilt stofna greiðsluseðil, sjá Stofna greiðsluseðil.
Ef iðkandi hefur millifært eða greitt með reiðufé og þú vilt merkja við það í kerfinu, sjá Merkja iðkanda greiddan.



Myndband sem sýnir skref fyrir skref hvernig á að skrá iðkendur í þjónustu: