Ekki er hægt að endurgreiða greiðsluseðil sem var greiddur í Abler. Þú getur millifært upphæðina til kaupanda í gegnum þinn heimabanka. Eftir það er mikilvægt að merkja greiðsluseðilinn sem endurgreiddan í kerfinu til að bókhald og skráningar séu réttar. Fylgdu þessum skrefum til að ljúka ferlinu:
1. Fjarlægðu iðkandann úr viðkomandi þjónustu
- Veldu Þjónustuyfirlit í vinstri valmyndinni í Stjórnenda HQ.
- Veldu þjónustuna þar sem viðkomandi iðkandi er skráður og finndu hann hægra megin á skjánum.
- Smelltu á punktana þjrá fyrir iðkandann og veldu Enda áskrift. Ef þjónustan er ekki hafin, velur þú Fjarlægja áskrift.
- Í glugganum sem birtist, hakaðu í viðeigandi valkosti:
- Fjarlægja iðkanda úr flokki: Þegar hakað er í þetta verður iðkandi fjarlægður úr flokknum og mun ekki lengur sjá dagskrá, viðburði og annað sem tengist flokknum.
- Sýsla með reikning: Hakaðu í þetta til að fara í reikninginn þar sem þú getur endurgreitt að fullu eða hluta greiðslunnar, fellt niður greiðslu, eða veitt afslátt.
- Athugasemd stjórnanda: Sláðu inn skýringu fyrir aðgerðinni. Athugasemdin verður einungis sýnileg stjórnendum í kerfinu.
- Veldu Staðfesta og fara í reikning til að halda áfram.
2. Merkja greiðsluseðilinn sem endurgreiddan
- Í reikningum, smelltu á punktana þrjá við greiðsluna og veldu Fella niður greiðslu.
- Í glugganum sem birtist, hafðu hakað við Fella niður reikning. Veldu Ok til að staðfesta.
- Annar staðfestinargluggi opnast. Hakaðu við Merkja greiðslu sem endurgreidd. Smelltu á Ok til að klára ferlið.
Reikningurinn verður nú merktur sem bakfærður. Ef þörf krefur, getur þú breytt stöðu reikningsins aftur í Greitt með því að smella á punktana þrjá og velja réttan valmöguleika.
Gagnlegar ábendingar Millifærslan sjálf þarf að gerast í gegnum heimabanka utan kerfisins. Vertu viss um að skrá allar breytingar í kerfinu til að tryggja samræmi í bókhaldi.
TENGDAR GREINAR
- Endurgreiða og fella niður reikninga í Abler
- Fella niður ógreidda reikninga
- Fjarlægja ógreidda áskrift
Leitarorð: greiðsluseðill, endurgreiða