Í Abler getur þú stýrt hvaða aðgang starfsmaður hefur. Aðgangsréttindi skiptast í eftirfarandi flokka:
Stjórnenda- og greiðsluréttindi: Fyrir stjórnendur félags sem þurfa yfirsýn yfir allt félagið.
Greiðsluréttindi: Fyrir þjálfara sem þarf að rukka fyrir mót í gegnum Abler Pay. Gert í gegnum deildir en ekki félag.
Stjórnendaréttindi: Fyrir yfirþjálfara sem má ekki sjá greiðslur.
Bókararéttindi: Veitir aðgang að bókhaldsflipanum undir Greiðslur. Bókari getur stofnað bunka, stillt bókhaldslykla og sótt bókhaldsgögn.
Stjórnenda-, greiðslu- og bókararéttindi: Veitir fullan aðgang að greiðslum og yfirsýn yfir allt félagið eða deildina.
Þjálfararéttindi: Veitir þjálfurum/kennurum/leiðbeinindum aðgang að ákveðnum flokknum. Sjá meira hér
Hvernig á að bæta stjórnanda við félag
Farðu í félagið sjálft og smelltu á Breyta félagi.
Í glugganum sem opnast, veldu Stjórnendur.
Skrifaðu inn netfang starfsmannsins.
Veldu viðeigandi réttindi eins og lýst er hér að ofan.
Smelltu á Stofna admin til að staðfesta.
Starfsmaðurinn þarf að skrá sig út og aftur inn til að breytingin taki gildi. Ef starfsmaðurinn er ekki með Abler aðgang þá fær hann boð á netfangið sitt um að stofna aðgang.
Hvernig á að bæta stjórnanda við deild
Farðu í viðkomandi deild, smelltu á þjónustuyfirlit og breyta svo Breyta deild.
Í glugganum sem opnast, veldu Stjórnendur.
Skrifaðu inn netfang starfsmannsins.
Veldu viðeigandi réttindi.
Smelltu á Stofna admin til að staðfesta.
Starfsmaðurinn þarf að skrá sig út og aftur inn til að breytingin taki gildi. Ef starfsmaðurinn er ekki með Abler aðgang þá fær hann boð á netfangið sitt um að stofna aðgang.
Hvernig á að bæta greiðsluréttindum við þjálfara
Farðu í viðkomandi deild, smelltu á þjónustuyfirlit og breyta svo Breyta deild rétt eins og í dæminu hér að ofan.
Í glugganum sem opnast, veldu Stjórnendur.
Skrifaðu inn netfang þjálfarans
Veldu "Greiðslur" sem réttindi.
Smelltu á Stofna admin til að staðfesta.
Starfsmaðurinn þarf að skrá sig út og aftur inn til að breytingin taki gildi.