Búðu til og haltu utan um viðburði sem eru utan venjulegra æfinga, eins og skráningar á mót, foreldrafundi eða hópsamkomur eins og pizzakvöld. Þessir viðburðir hafa ekki áhrif á mætingarskrár iðkenda, en þú getur valið að virkja greiðslumöguleika til að einfalda gjaldtöku og minnka stjórnsýsluvinnuna.
Til að búa til viðburð:
- Í Stjórnenda HQ, veldu Viðburðir í vinstri valmyndinni.
- Smelltu á Stofna og veldu Stofna viðburð.
- Veldu viðeigandi flokk og fylltu út upplýsingarnar fyrir viðburðinn. Smelltu svo á Stofna viðburð.
- Flokkur: Veldu viðeigandi flokk(a) til að að tryggja að réttir iðkendur og/eða forsjáraðilar fái boð á viðburðinn.
- Svæði: Veldu staðsetninguna þar sem viðburðurinn fer fram.
- Sjálfgefin mæting: Ef þessi valkostur er valinn, er gert ráð fyrir að allir muni mæta nema iðkandinn eða forsjáraðili breyti stöðunni í "mæti ekki". Ef ekki er hakað við sjálfgefna mætingu, þurfa iðkendur eða forsjáraðilar að svara til að gefa til kynna hvort iðkandinn mæti. Athugið: Sem þjálfari eða stjórnandi getur þú alltaf breytt svörunum eftir þörfum.
- Fjöldatakmörkun: Veldu þennan valkost fyrir viðburði með hámarks fjölda þátttakenda. Lokað verður fyrir skráningu þegar hámarks fjölda þátttakenda hefur verið náð.
- Senda tilkynningu: Þú getur valið að senda iðkendum og/eða forsjáraðilum tilkynningu um viðburðinn.
- Pinna efst í dagskrá: Með því að velja þennan valkost mun viðburðurinn vera efst í dagskrá iðkenda þangað til þeir svara.
- Ef þetta er greiðsluviðburður, hakaðu við Gjald fyrir viðburð. Aukavalkostir fyrir greiðsluupplýsingar munu birtast.
- Greiðslufrestur: Tilgreindu síðasta dag sem greiðsla þarf að berast.
- Reikn. viðtakanda: Reikningurinn þarf að vera tengdur öllum viðkomandi hópum. Ef svo er ekki, hafðu samband við þjónustuverið okkar fyrir aðstoð.
- Upphæð: Sláðu inn upphæðina sem þátttakendur verða rukkaðir um.
- Þegar þú hefur fyllt inn allar upplýsingarnar, veldu Stofna viðburð. Greiðsluviðburðurinn mun birtast efst í dagskrá flokksins. Þegar forsjáraðili eða iðkandi hefur greitt fyrir viðburiðinn, færist hannn sjálfkrafa á réttan stað í dagskrána.
Breyta viðburðum
- Opnaðu Viðburði.
- Veldu viðburðinn sem þú vilt breyta og veldu svo Breyta viðburði.
TENGDAR GREINAR
Leitarorð: viðburðir, greiðsluviðburður, gjald