Hægt er að skrá sig í tíma bæði í appinu og tölvu. Þú getur einnig séð æfingu dagsins með því að smella á æfinguna (Ef búið er að birta æfingu dagsins)


Í Abler appi
1. Smellt er á Bóka tíma uppi í hægra horninu

2. Þá opnast þessi gluggi og þar er hægt að sía, skoða æfinguna og skrá sig í tíma.

3. Til þess að skrá sig í tíma þá er smellt á bóka og þá opnast svona gluggi sem segir að þú ert búin að skrá þig í tímann.

  • Æfingin birtist svo í dagskránni þinni á forsíðu appsins.



Hvernig skrái ég mig í tíma í tölvu?


1. Til þess að skrá sig í gegnum tölvu þá er farið inn á abler.io/classes/,,nafn félags''

  • Þar er hægt að sjá æfingu dagsins, velja hvaða dag þú vilt skrá þig á æfingu og sía. Til þess að sjá æfingu dagsins þá er smellt á æfinguna.

2. Smellt á ,,bóka'' og þá opnast gluggi sem segir að þú ert búin að skrá þig í tímann.




Tengdar greinar: 

Hvernig nálgast ég kvittun fyrir áskriftina mína?
Til baka í algengar aðgerðir

Leitarorð: tímaskráning, líkamsrækt, áskrift.