Hægt er að stofna æfingu í appinu og tölvu, hér fyrir neðan eru leiðbeiningar sem sýna það ferli.


Í appi:


1. Velur flokkinn þar sem þú vilt stofna æfingu.

2. Þar er smellt á dagskrá og svo þrjá punktana uppi í hægra horninu. Þar er hægt að velja Stofna æfingu.




Mikilvægt að velja réttan hóp/hópa sem eiga að fá boð á æfinguna og velja svæði þar sem æfingin fer fram.


Ef hakað er í sjálgefin mæting gerið þið ráð fyrir að allir mæti. Foreldrar/iðkendur geta þó breytt úr mæti í mæti ekki. Ef ekki er hakað í sjálfgefin mæting þá þurfa foreldrar/iðkendur að svara hvort þeir mæti á æfinguna. 


Senda tilkynningu: Þið getið valið um það hvort þið viljið senda tilkynningu á aðstandendur og/eða leikmenn.



Í tölvu:


1. Til að stofna æfingu er smellt á viðburðir (örina) og á stofna æfingu.


2. Í þessum aðgerðamöguleika er boðið upp á að stofna staka æfingu.