Hægt er að stofna viðburð í appinu og í tölvu. Ef verið er að fara stofna greiðsluviðburð þá þarf þjálfari að vera með greiðsluréttindi.

Félagið sér um að gefa þjálfara greiðsluréttindi:
Sjá hér Smellið hér ef þið viljið sjá nánar um hvernig greiðsluviðburðir virka (Sjá grein Stofna greiðsluviðburð) Góð ráð varðandi viðburði eru neðst í greininni.



Í appi:


1. Valið er flokkinn þar sem viðburðurinn á að birtast.

2. Þar er farið í dagskrána og smellt á þrjá punktana uppi í hægra horni. Smellt er síðan á Stofna viðburð.

3. Fyllt er út skjalið sem opnast og neðst er hægt að haka við ef þetta á að vera greiðsluviðburður.




Mikilvægt er að velja rétta hópinn/hópana til þess að þeir sem eiga að mæta fái boð á viðburðinn. Við mælum með því að þið hakið ekki í sjálfgefin mæting til þess að fá svar um hvort iðkendur komist á viðburðinn. 


Fjöldatakmörkun er í boði og það þýðir að þið getið sett hámarksfjölda sem má skrá sig á viðburðinn. 


Gott er að haka í Pinna efst í dagskrá fyrir viðburð til að fá svörin sem fyrst. En þá birtist viðburðinn efst í dagskránni þangað til honum er svarað. Sjá nánari útskýringu hér: Pin to top



Í tölvu:


1. Farið er í Viðburðir og smellt á örina.

2. Smellt á stofna viðburð.







Góð ráð:


  • Nöfn á viðburðum skulu vera stutt og hnitmiðuð


  • Fyrir almenn frí skal eyða viðburðum úr viðburðardagatali í stað þess að ,,fella niður''.


  • Nota skal kladda og merkja við mætingu. Tölfræði flokksins verður markvissari og hagnýtari fyrir vikið.


  • Við innlestur leikja í gegnum sérsambönd skal tengja undirhópa þegar nær dregur leikjum til að tryggja að upplýsingar séu réttar.


  • Viðburður með fjöldatakmörkun má nota til að óska eftir innáleiðurum, boltasækjurum eða gæsluaðilum.


  • Nota ,,eyða viðburði'' í stað ,,fella niður'' þegar verið er að fella niður fleiri en einn viðburð til að forðast óþarfa tilkynningar til forráðamanna.