Þú getur greitt ógreidda reikninga fyrir æfingagjöldum í Abler appinu eða í vafra á tölvu. 


Í Abler appinu:

  1. Skráðu þig inn í appið og farðu íprófílinn þinn (neðst í hægra horninu).
  2. Veldu Reikningar
  3. Finndu ógreidda reikninginn sem þú vilt greiða og veldu hann.
  4. Veldu greiðslumáta eftir því sem við á.
    • Ef þú vilt nota frístundastyrk verður þú að auðkenna þig á island.is, velja upphæðina sem þú vilt ráðstafa og síðan greiðslumátann fyrir eftirstöðvarnar, ef einhverjar eru. 
      Athugaðu að ráðstöfunarupphæð frístundastyrks má ekki vera hærri en æfingagjöldin sjálf. 

 

Með því að velja körfuna getur þú séð heildarupphæð æfingagjalda. Afslættir koma einnig inn í körfuna. 


Í vafra: 

  1. Skráðu þig inn á www.abler.io/shop/ 
  2. Veldu Þú átt ógreidda reikninga efst í hægra horninu.
  3. Finndu ógreidda reikninginn sem þú vilt greiða og veldu Greiða..
  4. Fylgdu fyrirmælunum til að ljúka greiðslu.
Ath. Ef þú vilt nota frístundastyrk þarftu að auðkenna þig með Íslykli eða rafrænum skilríkjum á island.is. Þú þarft að hafa íslenska kennitölu til að auðkenna þig.


Til að ráðstafa frístundastyrk:

  1. Sláðu inn upphæðina sem þú vilt ráðstafa og veldu Staðfesta. Athugaðu að upphæðin má ekki vera hærri en æfingagjöldin sjálf.
  2.  Veldu greiðslumáta fyrir eftirstöðvarnar, ef einhverjar eru.

Aðstoð

Ef þig vantar aðstoð eða ert með einhverjar spurningar, bendum við á þjónustuver Abler abler@abler.io.


TENGDAR GREINAR

Hvar sé ég kvittanir, reikninga og áskriftir?


Leitarorð: greiðslur, frístundastyrkur, ógreiddur reikningur