Þú getur greitt ógreidda reikninga fyrir æfingagjöldum í Abler appinu eða í vafra á tölvu.
Í Abler appinu:
- Skráðu þig inn í appið og farðu íprófílinn þinn (neðst í hægra horninu).
- Veldu Reikningar.
- Finndu ógreidda reikninginn sem þú vilt greiða og veldu hann.
- Veldu greiðslumáta eftir því sem við á.
- Ef þú vilt nota frístundastyrk verður þú að auðkenna þig á island.is, velja upphæðina sem þú vilt ráðstafa og síðan greiðslumátann fyrir eftirstöðvarnar, ef einhverjar eru.
Athugaðu að ráðstöfunarupphæð frístundastyrks má ekki vera hærri en æfingagjöldin sjálf.
- Ef þú vilt nota frístundastyrk verður þú að auðkenna þig á island.is, velja upphæðina sem þú vilt ráðstafa og síðan greiðslumátann fyrir eftirstöðvarnar, ef einhverjar eru.
Með því að velja körfuna getur þú séð heildarupphæð æfingagjalda. Afslættir koma einnig inn í körfuna.
Í vafra:
- Skráðu þig inn á www.abler.io/shop/
- Veldu Þú átt ógreidda reikninga efst í hægra horninu.
- Finndu ógreidda reikninginn sem þú vilt greiða og veldu Greiða..
- Fylgdu fyrirmælunum til að ljúka greiðslu.
Ath. Ef þú vilt nota frístundastyrk þarftu að auðkenna þig með Íslykli eða rafrænum skilríkjum á island.is. Þú þarft að hafa íslenska kennitölu til að auðkenna þig.
Til að ráðstafa frístundastyrk:
- Sláðu inn upphæðina sem þú vilt ráðstafa og veldu Staðfesta. Athugaðu að upphæðin má ekki vera hærri en æfingagjöldin sjálf.
- Veldu greiðslumáta fyrir eftirstöðvarnar, ef einhverjar eru.
Aðstoð
Ef þig vantar aðstoð eða ert með einhverjar spurningar, bendum við á þjónustuver Abler abler@abler.io.
TENGDAR GREINAR
Hvar sé ég kvittanir, reikninga og áskriftir?
Leitarorð: greiðslur, frístundastyrkur, ógreiddur reikningur