Þessi grein veitir leiðbeiningar um hvernig á að bæta þjálfara við í Abler, velja réttan aldursflokk og úthluta viðeigandi þjálfarastöðu. Hún skýrir einnig mismunandi hlutverk þjálfara og hvernig á að stofna eða fjarlægja þjálfara í kerfinu.
Stofna þjálfara
1. Veldu "Þjálfarar" í vinstri stikunni undir viðeigandi deild
2. Stofna þjálfara
Smelltu á Stofna þjálfara efst í hægra horninu.
Það nægir að skrá netfang og símanúmer starfsmanns.
Ef starfsmaður er þegar með Abler-aðgang finnur kerfið hann og hægt er að bæta honum við viðeigandi flokk.
Ef þjálfarinn er ekki með aðgang:
Veldu viðeigandi flokk.
Skráðu netfang eða kennitölu þjálfarans.
Smelltu á Bæta við þjálfara.
3. Fylla út upplýsingar
Skráðu nafn þjálfarans ef þarf.
Símanúmer(GSM) er skilyrt og þarf að fylla út.
4. Velja stöðu þjálfara
Aðalþjálfari (e. Head Coach)
Sýndur sem slíkur í appinu, sem auðveldar leikmönnum og forráðamönnum að sjá hver ber ábyrgð á hópnum.
Getur bætt við öðrum þjálfurum, stjórnað viðburðum, æfingum og séð um öll verkefni tengd liðinu.
Þjálfari (e. Coach)
Svipaður aðalþjálfara en getur ekki bætt við fleiri þjálfurum í hópinn.
Í appinu birtist hann sem "Þjálfari" og er sýndur fyrir neðan aðalþjálfarann í uppbyggingu liðsins.
Aðstoðarmaður (e. Assistant)
Sjaldnar notað hlutverk ætlað foreldrum, búningastjórum eða öðrum aðstoðarmönnum.
Geta búið til viðburði en hafa ekki full þjálfararéttindi.
5. Stofna þjálfara
Smelltu á Stofna þjálfara.
Viðkomandi fær tölvupóst með leiðbeiningum um stofnun aðgangs og getur skráð sig inn í Abler.
Bæta við réttindum
Eftir að þjálfari hefur verið stofnaður í kerfinu er hægt að bæta við auknum réttindum t.d greiðsluréttindum svo hann geti stofnað greiðsluviðburð hjá sínum flokki. Sjá leiðbeiningar hér: Bæta stjórnenda- & greiðsluréttindum við starfsfólk.
Fjarlægja þjálfara
Farðu í Þjálfarar-valmyndina.
Smelltu á þrjá punktana við hliðina á nafni viðkomandi.
Veldu Fjarlægja úr öllum flokkum.
Þessi aðgerð fjarlægir starfsmanninn úr öllum flokkum samtímis.