Leiðbeiningar hvernig breyta má ýmsum persónulegum stillingum. Hafa ber í huga að stillingar í símanum sjálfum þurfa að leyfa tilkynningar frá Abler.


Í appi

Breyta um prófílmynd: 
1. Smellir á prófílinn þinn og þrjá punktana efst í hægra horninu.

2. Breytir svo myndinni með því að smella á myndavélarmerkið.

  • Ath. ef barnið ykkar er með eigin aðgang þá þarf að skipta um mynd á þeirra aðgang.


Breyta stillingum - Tungumál & tilkynningar


1.  Þegar smellt er á Prófíll þá er valið tannhjólið efst í hægra horninu.

2.  Þar er hægt að velja um hvað þið fáið í tölvupósti og hvað þið viljið fá sem tilkynningu í síma.



Í gegnum vafra á tölvu


Breyta um prófílmynd

1. Valið er Notandi og svo Breyta upplýsingum.
2. Smellt er á blýantinn hjá myndinni.
3. Þar hlaðið þið inn mynd og smellið á vista.

  • Ath. ef barnið ykkar er með eigin aðgang þá þarf að skipta um mynd á þeirra aðgang.





Breyta stillingum

1. Valið er Notandi og svo Breyta upplýsingum.

2. Smellt á stillingar og þar er hægt að velja um hvað þið fáið í tölvupósti og hvað þið viljið fá sem tilkynningu í síma.

3. Síðan er smellt á Vista.



Tengdar greinar: 

Hætta að fá skilaboð - Yfirgefa spjall
Hvernig fær barnið mitt Abler aðgang?
Til baka í algengar aðgerðir

Leitarorð: Stillingar, prófílmynd, tilkynningar.